Skip to main content

Notkunarleiðbeiningar

Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate

Ætlaður tilgangur

Ætlaður tilgangur Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate er skyndihjálparvara sem er ætluð til að skola sár og augu eftir slys með sýrur og basa.
Vörulisti og -heiti
Tilv.
Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate, 200 ml
4752
Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate DUO, 500 ml
4801

Notkunarleiðbeiningar – myndtákn – Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate

Skolaðu augað eða sárið með Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate (bláu augnskálinni) áður en þú skolar með Plum Wound and Eyewash 0.9% Sodium Chloride (grænu augnskálinni).
Snúðu lokinu.
Skolaðu augað eða sárið með Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate. Tæmdu úr flöskunni.
Snúðu lokinu.
Haltu áfram að skola með Plum Wound and Eyewash 0.9% Sodium Chloride. Tæmdu úr flöskunni.
Fleygðu tómu flöskunum.
Leitaðu til læknis.

Notkunarleiðbeiningar – myndtákn – Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate DUO

Skolaðu augun eða sárið með Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate DUO (bláu augnskálinni) áður en þú skolar með Plum Wound and Eyewash 0.9% Sodium Chloride DUO (grænu augnskálinni).
Snúðu lokinu.
Skolaðu augun eða sárið með Plum Wound and Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate DUO. Tæmdu úr flöskunni.
Snúðu lokinu.
Haltu áfram að skola með Plum Wound and Eyewash 0.9% Sodium Chloride DUO. Tæmdu úr flöskunni.
Fleygðu tómu DUO-flöskunum.
Leitaðu til læknis.

Viðvaranir

Ekki má nota þessa vöru í tilvikum þar sem vökvi sem inniheldur flúorsýru skvettist.
Ekki má nota þessa vöru í tilvikum þar sem vökvi sem inniheldur kalsíum skvettist.
Ekki má nota þessa vöru í tilvikum þar sem vökvi sem inniheldur natríumhýpóklórít (bleikiefni) skvettist.

Útskýring á táknum

Frekari upplýsingar er að finna í bæklingi aftan á merkimiðanum
Gefur til kynna framleiðanda lækningatækis og er sýnt ásamt nafni og heimilisfangi framleiðandans
CE-merking með númeri tilkynnts aðila
Einfalt sæfingarinnsigli
Lækningatæki
Hitastigsmörk við notkun
Hitastigsmörk fyrir geymslu
Flettu ytra lagi merkimiðans af eða opnaðu það til að lesa bæklinginn með frekari upplýsingum
Segir til um hvernig snúa skal flöskunni
Ekki nota ef pakkningin er skemmd
Má ekki nota aftur. Lækningatækið er einungis ætlað til notkunar í eitt skipti.
Segir til um lotunúmer framleiðanda til að auðkenna lotuna.
Fyrningardagsetning. Segir til um eftir hvaða dagsetningu má ekki nota lækningatækið.
Framleiðsludagur
Viðvörun.
Efni sem innihalda kalsíum (eins og kalsíumhýdroxíð, sement og kalk) geta aukið hættuna á aukaverkunum ef hornhimnuskemmdir eiga sér stað, sem geta leitt til hornhimnukölkunar.
Viðvörun.
Flúorsýra er eitruð og mjög ætandi fyrir augu, húð og bein. Plum Eyewash pH Neutral 4.9% Phosphate er ekki ætlað til skyndihjálpar vegna slysa á augum þar sem flúorsýra kemur við sögu, vegna þess að það takmarkar ekki ætandi áhrif flúorsýru.
Viðvörun.
NaClO er að finna í hreinsiefni (bleikiefni). Jafnvel þótt notkun jafnalausnar dragi úr ertandi áhrifum basa, aukast ertandi áhrif klórs. Það er því ekki ráðlagt að nota vöruna þegar vökvi af þessu tagi skvettist.

Aukaverkanir og ágallar

Vörurnar eru ætlaðar sem skyndihjálparvörur til að skola augu. Ef vart verður við aukaverkanir eða ágalla skal tilkynna það til Plum Safety ApS, á netfangið info@plum.eu eða í síma +45 6916 9600, svo hægt sé að gera nauðsynlegar ráðstafanir til úrbóta. Alvarlegar aukaverkanir skal ávallt tilkynna til þar til bærs yfirvalds.

Samskiptaupplýsingar

Plum Safety ApS • Mandelalleen 1 • DK-5610 Assens • +45 6916 9600info@plum.euplum.eu


Tengdar vörur